Mánudagur 07.09.2009 - 17:48 - Ummæli ()

Úrskurðarnefnd Þjóðkirkjunnar: Séra Gunnar sekur um siðferðisbrot, en má starfa við Selfosskirkju

Úrskurðarnefnd Þjóðkirkjunnar telur að séra Gunnar Björnsson hafi gerst sekur um siðferðisbrot með háttsemi sinni gagnvart tveimur ólögráða stúlkum meðan hann var sóknarprestur á Selfossi, m.a. með því að klappa þeim og kyssa á kinnina nokkrum sinnum.

Þetta kemur fram í frétt RÚV um úrskurðinn.

Nefndin segir að sóknarprestur hvorki megi né eigi að sýna af sér slíka háttsemi og vísar í siðareglur Prestafélags Íslands um að prestur megi ekki misnota aðstöðu sína sem sálusorgari eða ógna velferð skjólstæðings.

Nefndin hafnaði hins vegar kröfum sóknarnefndar Selfosskirkju um að mæla fyrir að Gunnar gegndi ekki aftur starfi við Selfosskirkju, og að mæla fyrir um frekari takmarkanir á störfum hans, segir í frétt RÚV.

Auk sóknarnefndarinnar hafði fagráð um kynferðisbrot innan þjóðkirkjunnar farið fram á að Gunnar snéri ekki aftur til starfa í Selfossprestakall.

Biskup Íslands, Karl Sigurbjörnsson, leysti séra Gunnar frá störfum um stundarsakir í september í fyrra á meðan málið var í rannsókn og fyrir dómi. Hann var sýknaður af ákæru um kynferðisbrot gegn tveimur stúlkum í héraðsdómi Suðurlands í desember. Hæstiréttur staðfesti niðurstöðuna í mars á þessu ári.

Biskup Íslands hafði að kröfu úrskurðarnefndarinnar framlengt til 1. ágúst leyfi séra Gunnars frá störfum á meðan mál hans var til meðferðar hjá nefndinni.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is