Fimmtudagur 10.09.2009 - 12:28 - Ummæli ()

Bíræfnir þjófar í Dugguvogi. Stálu 17 sófasettum. Reyna líklega að flytja þau úr landi

sofasett.jpgBíræfnir þjófar hafa á tveimur dögum stolið allt að 17 sófasettum frá húsgagnversluninni Patta við Dugguvog í Reykjavík.

Ríkisútvarpið sagði frá þessu í hádegisfréttum í dag.

Fram kom að sófaræningjarnir sem heimsóttu í húsgagnverslunina í fyrrinótt komu aftur í nótt. RÚV sagði að líklega hefðu þeir verið á mun stærri bíl en í fyrra skiptið.

Í frétt RÚV sagði að í fyrrinótt hefðu þjófarnir brotið upp fjóra gáma við verslunina og tekið fjögur eða fimm sett. Í nótt hafi þeir farið aftur á kreik. Þeir létu sendibíl sem lagt var fyrir gámana ekki stöðva sig og höfðu á brott með sér tíu eða tólf sett til viðbótar.

RÚV hefur eftir Þórarni Hávarssyni, sölustjóra hjá Patta, að augljóst sé að mennirnir hafi komið á stórum flutningabíl í seinna skiptið. Lítill markaður sé fyrir svona sófasett núna og líklegast flytji þjófarnir þau úr landi. Óvíst sé að tryggingar bæti tjónið sem er vel á fjórðu milljón króna og muni um slíkt hjá litlu fyrirtæki.
 


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is