Hrossakjöti, svínafitu, kartöflumjöli og fleiri efnum bætt við nautahakk sem selt er í verslunum
Það er opinbert leyndarmál að hrossakjöti, svínafitu, kartöflumjöli og ýmsum þyngdaraukandi, vatnsbindandi efnum er bætt við nautahakk sem selt er í verslunum.
Þetta segir Þórarinn Jónsson, bóndi á Hálsi í Kjós, í viðtali við fréttavef Morgunblaðsins.
Þórarinn rekur verslun með heimaafurðir á búi sínu. Meðal þess sem er á boðstólum er hreint „ómengað nautakjöt,” þar sem engum aukaefnum er blandað saman við framleiðsluna.
Fram kemur að mikið hefur verið að gera í versluninni síðan hún opnaði. Haft er eftir Þórarni að neytandinn sé að fá það sem hann borgi fyrir. Neytandinn eigi að fá hundrað prósent nautakjöt, hreina og ómengaða vöru. Verslunin sem heitir Matarbúrið er einungis opin þrjá daga í viku.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is