Sunnudagur 13.09.2009 - 21:21 - Ummæli ()

Breiðablik vann Keflavík og mætir Fram í úrslitum bikarkeppni karla í fótbolta

blikar.jpgBreiðablik mætir Fram í úrslitum bikarkeppni karla í knattspyrnu eftir 3:2 sigur á Keflavík á Laugardalsvelli í dag. Guðmundur Pétursson skoraði sigurmark Blika úr vítaspyrnu á 66. mínútu og tryggði þannig sæti í úrslitaleiknum. Breiðablik hefur ekki leikið í úrslitum bikarkeppninnar síðan 1971.

Leikurinn var fjörugur. Breiðablik komst í 2-0 með mörkum Elfars Freys Helgasonar og Kristins Jónssonar, en Guðjón Á. Antoníusson og Magnús S. Þorsteinsson jöfnuðu fyrir leikhlé.

Fram tryggði sér sæti í úrslitum í gær með því að sigra KR, 1-0.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is