Kreppan: Jón Ásgeir og Ingi- björg Pálma missa einkaþotuna. Tekin upp í skuld
Jón Ásgeir Jóhannesson og kona hans Ingibjörg Pálmadóttir fljúga ekki lengur landa á milli í einkaþotunni glæsilegu 101. Einn af lánardrottnum þeirra hefur tekið vélina upp í skuld.
Frá þessu var sagt í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi.
Fram kom að það er GE Capital, dótturfélag General Electric, sem hefur leyst til sína einkaþotu þeirra hjóna sem skráð var eign dótturfélags Baugs, BG Aviation. GE Capital átti veð í vélinni.
Stöð 2 segir að einkaþota af þessari gerð, Dassault Falcon, gerð kosti um tvo og hálfan milljarð íslenskra króna.
Þotan var sögð vera tæplega tveggja ára gömul. Hún taki átta farþega en svefnpláss sé í vélinni fyrir fjóra til fimm. Hún komist í 45 þúsund feta hæð en til samanburðar fari Boeing 757 vélar Icelandair hæst í 42 þúsund feta hæð. Í vélinni séu öll helstu þægindi, s.s. gervihnattasími, geislaspilari og dvd spilari.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is