Mánudagur 14.09.2009 - 12:03 - Ummæli ()

Leikdómari Morgunblaðsins gefur Fridu í Þjóðleikhúsinu ekki háa einkunn: Æ, æ, æ, æ!

fridakahlo.jpgMaría Kristjánsdóttir leikdómari Morgunblaðsins fór ekki ánægð heim af frumsýningu leikritsins Frida … viva la vida í Þjóðleikhúsinu á föstudagskvöldið. Hún segir ‘af fullkomlega miskunnarlausum heiðarleika’  í anda Fridu Kahlo, að ‘eini lesturinn, eina tilraunin til að miðla merkingu’  í sýningunni séu vel heppnaðir búningar Filippíu Elísdóttur.

Leikdómurinn birtist í Morgunblaðinu í dag.

María Kristjánsdóttir segir að handrit Brynhildar Guðjónsdóttur, sem jafnframt leikur mexíkósku listakonuna Fridu, sé  ákaflega skammt á veg komið sem leikverk, formgerð þess sé óljós, persónur líka; ‘meira talað en framkvæmt, samtöl samantíndar tilvitnanir í Fridu, Diego og fleiri, pólitíkin ákaflega grunnhyggin.’

Og leikdómarinn skýtur föstum skotum að tengslanetinu í Þjóðleikleikhúsinu, en eiginmaður Brynhildar, Atli Rafn Sigurðarson, leikstýrir verkinu:  ’Það er orðið nokkuð þreytt að endurtaka að stóra sviðið er ekki heppilegasta svið Þjóðleikhússins til að þroska hæfileika þeirra leikara sem vilja fremur skrifa og leikstýra en leika. En ég geri það og bið menn að hugleiða líka hvort ekki sé kominn tími til að hugsað sé fremur um áhorfendur en eiginmenn og fjölskyldur fastráðinna?’, skrifar María.

Leikdómur um verkið hefur enn ekki birst í öðrum miðlum, en af fenginni reynslu er ekki ólíklegt að dómar verði mismunandi.

Í kynningu verksins á vefsíðu Þjóðleikhússins segir að Frida Kahlo (1907-1954) sé ein af forvitnilegustu myndlistarmönnum 20. aldarinnar. Hún hafi verið gift Diego Rivera, einum þekktasta myndlistarmanni síns tíma, og þó að margir yrðu til að heillast af list hennar meðan hún lifði hafi það ekki verið fyrr en eftir dauða hennar sem hún hlaut heimsfrægð.

‘Sýningin er ferðalag um einstæða veröld þessarar tilfinningaríku konu, sem í gegnum sorgir og þjáningar orti hið undursamlega ljóð eigin lífs á striga – átakanlegt en fagurt, hávaðasamt en friðsælt. Það elska engar tvær manneskjur eins, og svo sannarlega engin eins og Frida Kahlo. Ögrandi verk um litina í lífinu og ástinni, þá mildu og þá sterku, þá heitu og djúpu, þá sem trylla og sefa, þá sem blasa við augum allra og þá sem bara sumir sjá,’ segir á vef Þjóðleikhússins.
 


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is