Mánudagur 14.09.2009 - 13:00 - Ummæli ()

Sean Penn (49): Skilinn og kominn með nýja, þeldökka píu

Sean Penn og eiginkona hans Robin Wright ætla loksins að ganga frá skilnaði en hún hefur þrisvar sinnum farið fram á skilnað að undanförnu en alltaf dregið til baka.

speeeeeeeeeen.jpg

Þar sem þau virðast hafa gefist upp á lífgunartilraunum hefur Sean Penn ákveðið að koma fram í dagsljósið með nána vinkonu sína en sú heitir Jessica White (25) og starfar sem fyrirsæta.

Jessica og Sean fóru saman út að borða í gær og þetta mun vera nóg til að staðfesta sögusagnir sem hafa lengi verið á kreiki um að þessi tvö hafi átt „sexy time“ saman meðan hann var enn löglega giftur Robin Wright.

seanpennjessicawhite1.jpg

Tímaritið People greinir frá því að Robin hafi farið fram á endanlegan skilnað þann 12 ágúst s.l. Ástæðan sem Robin gaf var óleysanlegur ágreiningur sem mætti lauslega þýða á þann hátt að Penn hafi ekki viljað láta af kvennafari og drykkju.

Parið mun deila forsjá yfir 16 ára syni þeirra Hooper Jack og Robin fer ekki fram á framfærslu.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is