Fasteignamarkaðurinn nánast frosinn. Verð lækkað um þriðjung frá byrjun árs í fyrra
Verð á íbúðum á höfuðborgarsvæðinu hefur lækkað um þriðjung frá því það náði hámarki í byrjun síðasta árs. Markaðurinn er nánast frosinn og viðskiptin hafa ekki verið minni í 30 ár en tók mikinn kipp árið 2004, þó aðallega á höfuðborgarsvæðinu.
Þetta kom fram í fréttum Sjónvarpsins í kvöld.
Fram kom að árið 2004 hækkað húsnæðisverð mjög skarpt og náði hámarki fyrir um það bil ári. RÚVsagði að síðan þá hefði hallað hratt á ógæfuhliðina og raunvirði fasteigna, með tilliti til verðbólgu, lækkað um 32% á einu ári.
Fram kom að í krónum talið hafa fasteignir lækkað um 12%. Sagt var að samkvæmt opinberum spám mundu fasteignir, a.m.k. á höfuðborgarsvæðinu, halda áfram að falla í verði en gert væri ráð fyrir að verð lækkaði um allt að 20%.
RÚV sagði að þegar fasteignamarkaðurinn var sem líflegastur árið 2005 og í lok árs 2007 hafi verið gengið frá um 250 kaupsamningum í viku hverri á höfuðborgarsvæðinu einu. Nú teljist það gott ef þessi tala nái 50 og vikur hafi liðið þar sem aðeins er gengið frá um 30 kaupsamningum.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is