Módel marsera í kynæsandi kynningarherferð Agent Provocateur
Það varð uppi fótur og fit þegar fyrirsætur frá undirfataframleiðandanum Agent Provocateur komu þrammandi niður Oxford street í London í morgun.

Það var í dögun sem fyrirsæturnar komu marserandi niður götuna og stefndu á verslunina Selfridges þar sem fram fór kynning á nýjum brjóstahöldum frá Agent Provocateur.
Stelpurnar voru ekki klæddar í annað en upprenndar nærbuxur úr leðri, leðurstígvél upp á mið læri, axlabönd og brjóstahaldara.

Það var því erfitt fyrir bílstjóra og fótgangandi vegfarendur að sýna stillingu en með sanni má segja að nokkrir hafi nánast snúið sig úr lið og vitni þakka fyrir að stelpurnar voru ekki á ferð síðdegis þegar mannfjöldinn verður meiri.
Nýja auglýsingaherferðin frá þessum ögrandi undirfataframleiðanda gengur m.a. út á ofurhetjuþema þar sem fyrirsæturnar koma fram sem 13 ólíkar ofurhetjur.
[youtube=www.youtube.com/watch?v=mdAIEs0nIs8]
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is