Fimmtudagur 17.09.2009 - 14:52 - Ummæli ()

Steini í Kók sagður halda Vífilfelli þrátt fyrir erfiðleika

thorsteinn-m-jonsson.jpgJón Ásgeir Jóhannesson heldur líklega áfram að kaupa sitt Diet Coke af Steina í Kók, meðan hann á fyrir því.

Viðskiptablaðið segir frá því í dag að Vífilfell verði tæpast tekið af Þorsteini M. Jónssyni, sem enn ræður ríkjum í Vífilfelli, þrátt fyrir að það kreppi að hjá honum, því hann njóti enn stuðnings aðalstöðva Coca Cola í Atlanta í Bandaríkjunum.

Blaðið segir þetta annað dæmi um óvænta fyrirstöðu sem bankarnir hafi lent í við yfirtöku skuldsettra fyrirtækja því erlendir framleiðendur hafi í sumum tilvikum ákvæði í samningum sínum hér á landi um að þeir verði að samþykkja alla nýja rekstraraðila.

„Þannig háttar til með Toyota sem þýðir það að Landsbankinn getur ekki svo auðveldlega tekið yfir rekstur Toyota á Íslandi en sem kunnugt er á Magnús Kristinsson, aðaleigandi Smáeyjar, í verulegum vandræðum,“ segir í umfjöllun blaðsins.

Sama máli gegni um rekstur Vífilsfell þrátt fyrir vandræði Þorsteins, sem meðal annars átti þriðjungshlut í Materia Invest ehf. sem komið var með neikvætt eigið fé upp á 30 milljónir evra þegar Kaupþing banki féll.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is