Vanskil hafa aukist verulega en verða enn stærra vandamál á næsta ári
Einstaklingum á vanskilaskrá hefur fjölgað hratt frá bankahruninu. Þeim mun hins vegar fjölga enn hraðar á næstu tólf mánuðum verði ekkert að gert, samkvæmt spálíkani Creditinfo, sem birt er í Morgunblaðinu í dag.
Í samantekt blaðsins kemur fram að flestir þeirra sem eru á vanskilaskrá og Creditinfo telur líklegt að lendi þar á næstunni eru frá 30 ára og upp í 49 ára og með börn á framfæri sínu, eins og sjá má á meðfylgjandi mynd Morgunblaðsins.
Hákon Stefánsson, starfandi stjórnarformaður Creditinfo á Íslandi, segir að það sé gagnslaust að taka skuldastöðu einstaklinga á tilteknum tímapunkti, líkt og Seðlabankinn hafi gert, og nota það við ákvörðun á afskriftum á skuldum.
„Þegar til stendur að færa niður skuldir fólks þá lýtur slíkt að greiðslugetu þess í framtíðinni,“ segir hann við Morgunblaðið.
„Þó einstaklingur hafi getað staðið í skilum í febrúar síðastliðnum þá segir slíkt ekkert um það hvort sá hinn sami geti gert það eftir eitt ár. Af því leiðir að einhvers konar áhættumat, er segir fyrir um greiðslugetu í framtíðinni, þarf að vera grundvöllur afskrifta skulda en ekki punktstaða í fortíðinni. Slíkt mat þarf að byggjast á yfirgripsmiklum fjárhagsupplýsingum, sérstaklega sögulegum gögnum, sem og upplýsingum um t.d. atvinnumissi fólks,“ segir hann.
Aðgerðir þurfa að vera tvíþættar – allir sitji við sama borð
Hákon segist telja að væntanlegar aðgerðir hljóti að verða í megindráttum tvíþættar. „Ég tel reyndar að ekkert annað komi til greina en að hvort tveggja komi til, þ.e. aðlögun greiðslubyrðar að greiðslugetu annars vegar, og niðurfærsla skulda að hluta hins vegar. Hvor leið um sig dugar ekki til. Ástæðan er einfaldlega sú að ef skuldir eru afskrifaðar hjá öllum, þar með talið þeim sem staðið geta undir skuldunum, þá minnkar svigrúmið til afskrifta hjá þeim sem í raun standa ekki undir sínum skuldum.“
„Fólk verður að hafa vissu fyrir því að allir sitji við sama borð,“ segir Hákon.
Magnús Norðdahl, deildarstjóri lögfræðideildar ASÍ, segir að það sé ekki eftir neinu að bíða með að grípa til aðgerða fyrir þann hóp heimila sem kominn er í alvarleg greiðsluvandræði.
„Við hjá ASÍ höfum lagt áherslu á að þau úrræði sem gripið verður til séu auðveld í framkvæmd, aðgengileg, fljótvirk og tryggi að skuldir verði skornar niður eða þeim skuldbreytt þannig að þær verði greiðanlegar í fyrirsjáanlegri framtíð. Þetta verður ekki gert öðruvísi en að taka gildandi löggjöf og breyta henni þannig að hún verði skuldaramiðuð,“ hefur Morgunblaðið eftir Magnúsi.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is