Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn verður að skýra hvers vegna lán til Íslands er ekki afgreitt
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, segir að ríkisstjórnin verði að fara opinberlega fram á það við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn að hann útskýri hvers vegna það dragist svo lengi að taka mál Íslands fyrir.
Þetta kemur fram í viðtali við hann í Morgunblaðinu í dag.
Blaðið rifjar upp að fram hafi komið hjá Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráðherra að lánamál Íslands og Icesave hangi á sömu spýtunni. Sigmundur Davíð segir að fulltrúi AGS hafi fullyrt við nefndir þingsins að svo sé ekki og þetta þurfi að fá á hreint.
Í viðtali við Spegilinn á RÚV í gær hélt Ólafur Ísleifsson hagfræðingur fram sömu sjónarmiðum. Hann taldi það vandræðalegt fyrir sjóðinn hvernig mál Íslands væri meðhöndlað. Svo virtist sem sjóðurinn kæmi fram sem handrukkari fyrir Breta og Hollendinga.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is