Sveinsbréf afhent: 160 útskrifast

Um 160 nemar fengu afhent sveinsbréf á sameiginlegri sveinsbréfaafhendingu sveina- og meistarafélaga í bíl-, bygginga-, málm- og véltæknigreinum sem haldin var á Grand hótel föstudaginn 18. september 2009. Útskriftin var á vegum Félags iðn- og tæknigreina, Fagfélagsins og meistarafélaganna. Flestir luku sveinsprófi í húsasmíði eða 84 talsins. Auk þess voru 15 pípulagningamenn, 10 múrarar, 23 málarar, 9 bifvélavirkjar, 7 bifreiðasmiðir, 4 bílamálarar og 7 vélvirkjar útskrifaðir.

Í setningarræðu sinni fjallaði Hilmar Harðarson, formaður Félags iðn- og tæknigreina, um hversu þýðingarmikil iðn- og tæknimenntun sé fyrir samfélagið. „Ánægjulegt er að sjá hversu margir eru að útskrifast í þessum mikilvægu starfsgreinum og er það nokkur fjölgun frá fyrra ári“.
Hilmar telur jafnframt að auka þurfi vægi iðn- og tæknigreina í skólakerfinu. „Mikil þörf mun verða á slíkri þekkingu á næstu árum, t.d. við uppbyggingu sprotafyrirtækja“.

Finnbjörn Hermannsson, formaður Fagfélagsins, hvatti nýútskrifaða sveina í lokaávarpi til að nýta sér þá fjölmörgu endurmenntunarmöguleika sem væru í boði hjá Iðunni fræðslusetri. Nauðsynlegt væri að viðhalda þekkingu og auka hæfni fagfólks á þessum sviðum.
Myndirnar tók Rúnar Hreinsson fyrir Eyjuna. Á neðstu myndinni eru Baldur Þór Baldvinsson, formaður Meistarafélags húsasmiða, Finnbjörn Hermannsson, formaðurFagfélagsins og Hilmar Harðarson, formaður Félags Iðn- og tæknigreina.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is