Mánudagur 21.09.2009 - 17:09 - Ummæli ()

Bretland: Stundaði kynlíf með 15 ára stúlku -Handjárn og titrarar

Breskur tónlistarkennari, Helen Goddard (26), var í dag dæmd í 15 mánaða fangelsi fyrir að misnota fimmtán ára nemanda sinn kynferðislega.

helengoddard.jpg

Kennarinn hafði frá því í febrúar og þar til í júlí átt í kynlífssambandi við stúlkuna sem var nemandi hennar í einkaskóla í Bretlandi.

Helen, sem gekk undir nafninu ‘The Jazz lady’ var mjög vinsæll kennari í skólanum og þá sérstaklega meðal stúlknanna. Hún myndaði vinskap við hinn fimmtán ára gamla nemanda sinn. Vinskap sem fljótlega þróaðist út í annað og meira.

Meðal annars fóru þær í rómantíska helgarferð til Parísar og hittust margsinnis á heimili Helen eða á kaffi og veitingahúsum.

Lögregla gerði margskonar hjálpartæki upptæk af heimili Helen Goddard. Þar á meðal voru bleik og loðin handjárn og titrarar.

Foreldrar stúlkunnar halda því fram að með þessu athæfi hafi Helen Goddard brugðist trausti nemanda síns. Nemandinn heldur því hinsvegar fram að hún hafi átt allt frumkvæði að kynlífi með Helen og hafi verið því algerlega samþykk.

Engu að síður er athæfið með öllu ólöglegt. Kynlíf með yngri en 16 ára er bannað í Bretlandi og sé um samband milli kennara og nemanda að ræða hækkar sá aldur upp í 18 ár.

Helen Goodard var talin undrabarn á sviði tónlistarinnar en hún kennir m.a. á trompet.

Algengustu kynferðisglæpir kvenna þar sem konur eru dæmdar fyrir misnotkun á einstaklingum undir lögaldri eiga sér stað í skólum. Það er að segja þar sem kennari misnotar nemanda sinn og á þetta jafnt við um gagnkynhneigðar sem samkynhneigðar konur.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is