Fatahönnuður olli uppnámi með fyrirsætum í stærðum 12 og 14
Kanadíski fatahönnuðurinn Mark Fast (28) olli miklu uppnámi í tískubransanum þegar hann ákvað á síðustu stundu að nota stelpur í algengum fatastærðum til að sýna hönnun sína.

Með þessu vildi Mark sýna að allar konur gætu tekið sig vel út í fötunum hans sem eru þröng og leggjast vel að líkamanum en Mark sérhæfir sig í gerð fallegra prjónakjóla.
Þegar þessi djarfi prjónakóngur sagði hönnunarliði sínu frá áformunum olli hann miklu uppnámi. Svo miklu að tveir sögðu sig úr starfsliðinu!
Mark lét þetta þó ekki slá sig út af laginu og hélt fast við sitt.


Það bar árangur sem erfiði. Sýningin sló í gegn. Mark fann fyrirsætur frá umboðskrifstofunni 12+ og óhætt er að segja að þær hafi tekið sig vel út í kjólunum frá honum.
Það gerðu reyndar fyrirsætur í hefðbundnum fyrirsætustærðum líka, en með þessu sýndi Mark Fast að flestar konur, burtséð frá fatastærðinni, geta verið fallegar í fötum frá honum.


Með uppátæki sínu braut Mark Fast hefð í tískubransanum. Hefð sem margir hafa lengi haft áhuga á að vinna gegn en átraskanir og vandamál þeim tengd eru mjög algeng meðal fyrirsæta og þeirra sem starfa í þessum geira.
Árið 2007 létust nokkrar fyrirsætur úr anorexíu og í kjölfarið var sett á laggirnar stofnun sem heitir Model Health Inquiry. Vonandi koma fleiri til með að feta í fótspor þessa hugrakka hönnuðar.

Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is