Mánudagur 21.09.2009 - 15:10 - Ummæli ()

Staðfesting J. Edgar Hoovers í áður óbirtri FBI skýrslu: Bobby Fischer var rangfeðraður

bobbyfischer.jpgNýjar upplýsingar í grein í Los Angeles Times í dag renna enn traustari stoðum undir staðhæfingar sem áður hafa birst um að Bobby Fischer hafi verið rangfeðraður; að faðir hans hafi ekki verið Hans-Gerhardts Fischer heldur ungverskur gyðingur, fluggreindur eðlisfræðingur að nafni Paul Felix Nemenyi.

Greinin er eftirsama blaðamann og fyrstur skýrði ásamt eiginkonu sinni frá þessum möguleika í grein í Philadelphia Inquirer árið 2002.

Opinberlega var Bobby Fischer skráður sonur Hans-Gerhardts Fischers, eðlisfræðings af þýskum uppruna sem móðir hans, Regina Fischer, giftist í Moskvu 1933. Regina Fischer, var afar vinstrisinnuð og mikill friðarsinni og í skýrslum, sem bandaríska alríkislögreglan FBI aflétti leynd af við dauða hennar1997, eru vísbendingar um að leiðir þeirra hafi skilið 1939, eða fjórum árum áður en Bobby fæddist. Í skýrslunum kemur einnig fram að þau Regina og Paul Nemenyi hafi átt í ástarsambandi. Nemenyi var þá fluttur til Bandaríkjanna og var kennari við Colorado State College í Fort Collins meðan Regina stundaði nám í sama ríki við University of Denver. Ennfremur kemur þar í ljós að Nemenyi hafi greitt meðlag með Bobby.

bobby-fischer-paul-nemenyi.jpgPaul Nemenyi tók síðar þátt í rannsóknum og þróun fyrstu kjarnorkusprengju Bandaríkjamanna.

Nicholas skýrir frá því í nýju greininni að áður óþekkt skýrsla FBI um Paul Felix Nemenyi, sem hann hafi loks fengið senda í pósti í júlí á þessu ári, svo og frekari rannsóknir þeirra hjóna, taki í raun af allan vafa um að Nemenyi hafi verið faðir Fischers.

Í FBI-skýrslunni er meðal annars að finna bréf sem J. Eddgar Hoover skrifaði til kollega síns hjá CIA 22. maí, 1959 um nýlegar njósnir sem þá fóru fram um mæðginin Bobby og Regina, sem var yfirlýstur kommúnisti. Í spássíu bréfsins skrifar Hoover: „Það er athyglisvert að geta þess að rannsóknir hafa leitt í ljós að faðir Robert James Fischer er ekki [Gerhardt] Fischer eins og frú Fischer greinir frá. Í ljós hefur komið að faðir Robert James Fischer er maður að nafni Paul Felix Nemenyi.“

Í greininni er því einnig sagt frá samskiptum Bobby Fischers við hálfbróður sinn, annan son Nemenyi og því velt upp sem líklegri ástæðu gyðingahaturs Fischers, að móðir hans hafi svikið hann um sannleikann um rétt faðerni, þar til að Paul Felix Nemenyi látnum, en þá Fischer var níu ára. Fram að þeim tíma hafði móðir hans aðeins kynnt hann sem vin, að nafni Paul, og þeir Bobby átt nokkrar samverustundir.

Í greininni í Los Angeles Times er einnig vitnað í bók frá því í fyrra eftir ungverskan blaðamann þar sem sagt er frá því að Bobby hafi spurt móðir sína að því níu ára hvað hafi orðið um Paul. Hún hafi sagt að hann væri dáinn. „Hann var pabbi þinn,“ á hún að hafa sagt syninum. „Vissirðu það ekki?“

Sjá einnig frekari upplýsingar um þessi má í l hér í bloggi Gretu Bjargar Úlfsdóttur frá í janúar 2008. Í þessu myndbandi sem Greta vísar einnig á er að finna mynd af Paul Felix Nemenyi þar sem svipurinn leynir sér ekki.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is