FME gefur loka, lokafrest á uppgjör Landsbankans
Fjármálaeftirlitið hefur ákveðið að gefa frest fram til 9. október n.k. á lokauppgjör milli Landsbankas og Nýja Landsbanka Íslands (NBI).
Síðast þegar FME leyfði frestun uppgjörsins, um miðjan ágúst, stóð til að þessu ætti að vera lokið eigi síðar en 30. september.
En þetta er ekki í fyrsta skipti sem FME gefur síðasta lokafrest til að klára málið. Í júní í sumar og aftur í júlí gaf FME skilanefndum gömlu bankanna og stjórnum nýju bankanna lokafrest í mánuð til að gera upp eignir og skuldir milli aðilanna.
FME birtir ákvörðunina á heimasíðu. Þar segir m.a. að í bréfi frá fjármálaráðherra þann 18. þessa mánaðar óski samningsaðilar eftir frekari fresti til samninga og frágangs fjármálagernings um uppgjör vegna ráðstöfunar eigna og skulda Landsbankans til NBI. FME segist fallast á það en minnir um leið á fyrri frestanir.
Uppgjör hinna stóru viðskiptabankanna, Glitnis/Íslandsbanka og Kaupþings/Nýja Kaupþings, kláruðust um miðjan þennan mánuð.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is