Miðvikudagur 23.09.2009 - 14:00 - Ummæli ()

Julia Roberts (41): Borðar, biður, elskar og er með 350 öryggisverði

Julia Roberts hefur valdið íbúum Pataudi þorpsins á Indlandi talsverðu uppnámi en hún réði 350 öryggisverði til að gæta sín meðan hún leikur í myndinni Borða, biðja, elska.

julia.jpg

Myndin er byggð á metsölubókinni Eat, Pray, Love eftir Elizabeth Gilbert og segir frá konu sem skilur við manninn sinn og leitar því næst að sjálfri sér og sannleikanum. Meðal annars með viðkomu á Indlandi.

Bæjarbúar í Pataudi segjast nú hvergi komast fyrir öryggisvörðum Juliu, meðal annars komist þeir ekki í bænahúsið.

„Þetta er heilagasti tími ársins hjá okkur og við komumst ekki til bæna,“ sagði svekktur þorpsbúi.

Julia hefur einnig fengið til umráða brynvarinn bíl sem hún notar til að ferðast með börnum sínum þremur en bærinn er í um klukkustundar fjarlægð frá Delhi.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is