Miðvikudagur 23.09.2009 - 13:32 - Ummæli ()

Össur eftir Strauss-Kahn fund: Ekkert því til fyrirstöðu að AGS taki Ísland fyrir í næsta mánuði

ossur-strauss-kahn1.jpgÖssur Skarphéðinsson utanríkisráðherra segist mun bjartsýnni en áður eftir fund sinn með Dominiq Strauss-Kahn framkvæmdastjóra AGS, að Ísland komist fljótlega á dagskrá stjórnar sjóðsins.

Össur telur ekkert því til fyrirstöðu að stjórn sjóðsins geti tekið málið fyrir í næsta mánuði.

Fundurinn fór fram í New York í gærkvöldi. Össur segir í viðtali við RÚV að hann hafi lýst miklum vonbrigðum íslenskra stjórnvalda með framgang efnahagsáætlunar Íslands og rætt mjög hreinskilnislega um Icesave málið. Ekki væri að líta fram hjá því að Hollendingar og Bretar beittu sér gegn því að sjóðurinn lyki endurskoðuninni þar til Icesave málið kláraðist.

Össur kvað Strauss-Kahn hafa tekið vel boði um að koma til Íslands til að hann gæti kynnt sér viðhorf Íslendinga til sjóðsins.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is