Ræningjar notuðu þyrlu í stórfelldu peningaráni í Stokkhólmi
Sænska lögreglan leitar nú ræningja sem notuðu stolna þyrlu til að ræna peningageymslu öryggisfyrirtækisins G4S í Stokkhólmi snemma í morgun.
Ræningjarnir sigu úr þyrlunni niður á þak geymslunnar, sem er í úthverfinu Västberga, og brutu sér leið inn. Síðan kváðu við sprengingar. Skömmu síðar sáust mennirnir troða pokum sem talið er að hafi verið fullir af peningum inn í þyrluna, sem síðan var flogið á brott.
Dularfullum sekk hafði verið komið fyrir á þyrlupalli lögreglunnar í Stokkhólmi sem kom í veg fyrir að þyrla lögreglunnar gæti hafið sig á loft þaðan til að veita ræningjunum eftirför.
Ekki er vitað hversu miklum peningum var stolið, en talið að það upphæðin sé umtalsverð. Lögreglan fann síðan þyrlu ræningjana í skógi norður af Stokkhólmi. Hún var tóm.
Samkvæmt frétt Dagens Nyheter á netinu telur lögreglan að ræningjarnir leynist enn í skóginum og leitar þeirra þar.
Sjá einnig myndbandsupptökur frá í morgun af þyrlunni á flugi.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is