Rannsóknir á Drekasvæðinu frestast um óákveðinn tíma. Sagex Petroleum hættir við
Eina gilda umsóknin um leyfi til rannsókna á Drekasvæðinu hefur verið dregin til baka.
Þetta á lesa á vefsíðu Orkustofnunar. Fjallað var um málið í hádegisfréttum RÚV.
Fram kom að Orkustofnun barst síðdegis í gær erindi frá Sagex Petroleum, þar sem sameiginleg umsókn félagsins og Lindir Exploration um sérleyfi til rannsókna og vinnslu kolvetnis á Drekasvæðinu er dregin til baka.
Það var í maí í vor sem frestur til að sækja um sérleyfi til rannsókna og vinnslu kolvetnis á Drekasvæði. Orkustofnun bárust þá umsóknir frá Aker Exploration og fyrirtækjunum Sagex Petroleum og Lindir Exploration. Fyrr í sumar dró Aker Exploration umsókn sína til baka vegna breyttrar stefnumörkunar hjá fyrirtækinu í kjölfar samstarfs og síðar samruna við annað fyrirtæki.
Á vefsíðu Orkustofnunar segir að í ljósi þessa muni Orkustofnun ekki veita sérleyfi á þessu ári samkvæmt skilmálum fyrsta útboðs á sérleyfum til rannsókna og vinnslu kolvetnis á Drekasvæðinu. Stefna um framhaldið verður mótuð á næstunni af viðkomandi stjórnvöldum.
Fram kemur að í samskiptum við þau olíuleitarfyrirtæki sem sýndu útboðinu áhuga, en sóttu hins vegar ekki um sérleyfi, kom fram að helstu ástæður fyrir því að þau sátu hjá að þessu sinni voru m.a. bágt efnahagsástand á útboðstímabilinu með tilheyrandi skorti á nýju fjármagni og mikil áhætta sem fylgir því að hefja rannsóknir á nýju svæði eins og Drekasvæðið er.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is