Miðvikudagur 23.09.2009 - 10:51 - Ummæli ()

Ríkislögreglustjóri segir fíkni- efnaviðskipti ábatasöm. Sumir hafa auðgast gríðarlega á dópinu

haraldur-johannessen2.jpgÞað er mjög ábatasamt að stunda fíkniefnasölu á Íslandi. Hér á landi er fólk sem auðgast hefur gríðarlega á innflutningi og sölu fíkniefna. Umsvif erlendra hópa, einkum frá Litháen, hafa einnig verið áberandi.

Þetta sagði Haraldur Johannessen, ríkislögreglustjóri, í ræðu sem hann flutti á málþingi Orators, félags laganema við Háskóla Íslands, í gær.

Ræðuna í heild má lesa á vef lögreglunnar. Einnig er sagt frá henni á Vísi.

Erindi ríkislögreglustjóra var flutt undir yfirskriftinni „Er skipulögð glæpastarfsemi raunveruleg ógn á Íslandi?“. Haraldur sagði að þessari spurningu þyrfti að svara játandi. Á síðustu árum hefði orðið algjör grundvallarbreyting á skipulagðri glæpastarfsemi á Íslandi. Hún væri skipulagðri en áður auk þess nýir aðilar létu nú til sín taka á þessum vettvangi. Þá væri hún raunveruleg ógn í sanfélaginu.

„Skipulögð glæpastarfsemi er raunveruleiki sem stjórnvöld á Íslandi og almenningur allur verður að horfast í augu við; þetta er veruleiki sem kallar á viðbrögð af margvíslegum toga og síðast en ekki síst er hér um að ræða þróun sem sjálfsagt og mikilvægt er að upplýsa fólkið í landinu um,“ sagði Haraldur.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is