Fimmtudagur 24.09.2009 - 10:13 - Ummæli ()

Atvinnurekendur reiðir Seðlabankanum. Segja að hann sé að framlengja kreppuna

vilhjalmur-egilsson.jpgVilhjálmur Egilsson, framkvæmdstjóri Samtaka atvinnulífsins, segir að ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans að halda stýrivöxtum óbreyttum í 12% sé ögrun við aðila stöðugleikasáttmálans, vinnumarkaðinn og opinber stjórnvöld.

Vilhjálmur segir ennfremur að með ákvörðun sinni sé nefndin að framlengja kreppuna í stað þess að koma þjóðfélaginu út úr henni. Hann segir að ríkisstjórnin verði að beita sér gagnvart bankanum og tryggja að ákvæði stöðugleikasáttálans um að stýrivextir verði eins stafs tala fyrir 1. nóvember nái fram að ganga.

Þetta kemur fram í viðtölum við Vilhjálm í vefmiðlum og í fréttum RÚV.

Enginn formlegur stýrivaxtadagur er fyrr en 5. nóvember.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is