Fimmtudagur 24.09.2009 - 10:42 - Ummæli ()

Viðskiptablaðið: Salt Investments stendur og fellur með sölu 10% hlutar í Actavis

robertwessman.jpgEignarhaldsfélagið Salt Investments, sem er í 90% eigu Róberts Wessman, á nú í samningaviðræðum við gömlu bankana um endurgreiðslu skulda. Í Viðskiptablaðinu í dag kemur fram að framtíð félagsins ráðist af því hvernig gangi að selja 10% eignarhlut félagsins í lyfjafyrirtækinu Actavis.

Árni Harðarson, forstjóri Salt Investments, segir í samtali við Viðskiptablaðið í dag að nú þegar sé búið að ganga frá rammasamningi við skilanefndir bankanna. Endurgreiðslur skulda hangi saman við væntanlega sölu Actavis, sem nú er í óformlegu söluferli, en Salt Investments á tæpan 10% hlut í félaginu.

„Bæði við og bankarnir erum í raun að bíða eftir niðurstöðu úr því máli,“ er haft eftir Árna í blaðinu.

Ennfremur er haft eftir Árna í Viðskiptablaðinu: „Við höfðum gert ráð fyrir að búið að væri að selja Actavis á þessum tíma þannig að hægt væri að gera upp skuldirnar. Það hefur sem kunnugt er ekki gengið eftir. Þrátt fyrir að Actavis sé formlega til sölu þá er enn ekkert fast í hendi.“

Fram kemur í blaðinu að það er Merrill Lynch sem hefur haft söluferlið með höndum.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is