Barack Obama ákveður skyndilega Ólympíuför til Kaupmannahafnar
Barack Obama hefur ákveðið að halda til Kaupmannahafnar í vikunni til að styðja við umsókn Chicagoborgar um að halda Ólympíuleikana 2016.
Forsetinn og Michelle eiginkona hans hitta Margréti Danadrottningu í heimsókn sinni og Lars Løkke Rasmussen forsætisráðherra.
Áður hafði verið tilkynnt af hálfu Hvíta hússins að Barack Obama kæmist ekki í ferðina vegna anna. Í dag var síðan tilkynnt að forsetahjónin yrðu bæði viðstödd fund Alþjóðaólympíunefndarinnar á föstudag þegar staðsetning leikanna 2016 verður akveðin. Chicago á í hörkukeppni um leikanna við þrjár aðrar borgir: Ríó de Janeiro, Madríd and Tókyo.
Forsetahjónin leggja mikla áherslu á stuðning sinn við Ólympíuumsókn Chicago, enda hefur borgin verið pólitískt bakland þeirra til margra ára og Obama öldungardeildarþingmaður Illinois-ríkis.
Þetta er í fyrsta sinn sem forseti Bandaríkjanna leggur fram ósk af þessu tagi persónulega fyrir nefndina.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is