Mánudagur 28.09.2009 - 17:30 - Ummæli ()

Framsóknarmenn: Jákvætt ef ríkisstjórnin ætlar loksins að leiðrétta skuldir heimilanna

framsokn1.jpgFramsóknarmenn telja „jákvætt ef rétt reynist að ríkisstjórnin ætli loksins að grípa til almennra aðgerða til að leiðrétta skuldir heimilanna.“

Þingmenn og landsstjórn flokksins segja m.a. í ályktun fundar sem lauk á Hólmavík i dag:

„Framsóknarmenn og fleiri hafa í 8 mánuði barist fyrir slíkum aðgerðum og ljóst að stefnubreyting ríkisstjórnarinnar yrði mikill sigur fyrir heimilin og þá sem hafa barist fyrir almennri skuldaleiðréttingu.“

Í ályktuninni er þó jafnframt harmað „að ríkisstjórnin standi ekki heilshugar að baki Norðlendingum í þeirra atvinnusköpun“ og laggst „eindregið gegn því að skattahækkanir ríkisstjórnarinnar nái til virðisaukaskatts á  matvæli“ því slík hækkun muni koma verst við lágtekjufólk, atvinnulausa, aldraða og öryrkja.

„Ráðaleysi ríkisstjórnarinnar hefur verið æpandi og ljóst að heimili og fyrirtæki þola ekki lengri bið eftir aðgerðum.  Ríkisstjórnarflokkarnir hafa eytt dýrmætum tíma í samræðustjórnmál og yfirlýsingar, nú er kominn tími til að láta verkin tala,“ segir að lokum í ályktun Framsóknarmanna.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is