Mánudagur 28.09.2009 - 06:25 - Ummæli ()

Réttarfarsnefnd skoðar hertar reglur til að stöðva persónuníð á netinu

netnid.jpgRéttarfarsnefnd mun skoða hvort breyta eigi lögum til að taka á ólöglegri birtingu persónuupplýsinga á netinu í kjölfar ábendinga Persónuverndar.

Frá þessu er sagt í Fréttablaðin í dag.

„Þetta er áhugaverð ábending og brýnt að taka þetta upp. Það veit það hver sem hefur farið inn á síður eins og ringulreid.is. Ég hef fengið til mín foreldra sem voru örvilnaðir vegna þess að úrræði vantar til að stöðva birtingu á netinu,“ segir Ragna Árnaóttir dómsmálaráðherra í viðtali við Fréttablaðið.

Fram kemur í blaðinu að Sigrún Jóhannesdóttir, forstjóri Persónuverndar, sendi dómsmálaráðherra bréf á dögunum þar sem lagt var til að dómstólar fengju völd til að loka fyrir aðgengi íslenskra netnotenda að síðum sem brjóta gegn persónuverndarsjónarmiðum.

Rifjað er upp að fjarskiptafyrirtækin ákváðu nýlega að loka fyrir aðgang að netsíðunni ringulreid.org, sem er vistuð erlendis en haldið úti af íslenskum aðilum. Þar hafi reglulega birst myndir af fáklæddum barnungum stúlkum og drengjum, og jafnvel upplýsingar á borð við símanúmer og netföng.

Fréttablaðið segir að verði hugmyndir Persónuverndar að veruleika geti lögregla krafist þess að lokað sé fyrir viðlíka síður. Þá muni dómstólar fjalla hratt um málið og ákveða hvort lokað verður fyrir síðurnar.

Haft er eftir dómsmálaráðhera að í málum af þessu tagi togast á tjáningarfrelsið og persónuverndar­sjónarmið, og því eðli­legt að vald til að grípa í taumana liggi hjá dómstólum.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is