Þriðjudagur 29.09.2009 - 11:30 - Ummæli ()

Atvinnurekendur vara við skattahækkunum. Vilja að ríkið dragi frekar úr útgjöldum

hus-atvinnulifsins.jpgSamtök aðila í atvinnurekstri vara við þeirri skattastefnu stjórnvalda að leggja nýjar tegundir gjalda á atvinnureksturinn og hvetja til þess að megináherslan verði lögð á uppbyggingu og sköpun starfa. Þau segja að stefna stjórnvalda vinni gegn markmiðum um endurreisn hagkerfisins, hærra atvinnustig og uppbyggingu sterks og sjálfbærs velferðarkerfis.

Þetta kemur fram í sameiginlegri tilkynningu frá Samtökum atvinnulífsins og Viðskiptaráði.

Í tilkynningunni segir að nú í vikunni verði fjárlagafrumvarp fyrir árið 2010 kynnt, en þar verði fyrsta skrefið tekið til að draga úr fjárlagahallanum. Öllum sé ljóst að hið opinbera muni þurfa að gæta mikils aðhalds í rekstri enda geri áætlun stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins ráð fyrir að rekstur þess verði orðinn sjálfbær að þremur árum liðnum.i Framundan blasi því við vandasamar og sársaukafullar ákvarðanir um hvar og hversu mikið verði skorið niður og hvernig skattheimtu skuli háttað í náinni framtíð.

Þá segir að af þeim tveimur valkostum sem stjórnvöld standi frammi fyrir, þ.e. að hækka skatta eða draga úr útgjöldum, sé mjög mikilvægt að stjórnvöld leggi áherslu á seinni leiðina. Í stöðugleikasáttmála vinnumarkaðarins sé kveðið á um að skattar verði lækkandi hlutfall aðlögunaraðgerða eftir yfirstandandi ár og ekki samtals hærri en 45% þeirra fyrir árin 2009-2011. Mikilvægt sé að við þetta verði staðið. Umtalsvert svigrúm sé til hagræðingar í rekstri hins opinbera enda hafi útgjöld þess vaxið mikið á undanförnum árum. Auk þess sé alls ekki fyrirséð hver áhrif verulegra skattahækkana yrðu við þær viðkvæmu aðstæður sem ríkja í efnahagslífinu. Til þess að skatttekjur aukist þurfi annað hvort að auka hlutfallslega skattheimtu eða breikka þá skattstofna sem myndi tekjurnar. Óvíst sé hvort skattahækkanir skili hærri skatttekjum þar sem aukin skattbyrði leiði til minnkandi umsvifa og þar af leiðandi minni skattstofna.

Orðrétt segir í tilkynningu atvinnurrekenda: ’Forsætisráðherra hefur þegar boðað skattahækkanir, þ.m.t. nýja skatta á borð við orku-, umhverfis- og auðlindaskatta. Þótt ekki liggi fyrir á þessari stundu hvernig þessir skattar verði útfærðir þá er ljóst að eðli þeirra er að skattleggja kostnað fyrirtækjanna og skattgreiðslur verða þar með óháðar afkomu. Slík skattheimta dregur úr samkeppnishæfni fyrirtækjanna gagnvart erlendum keppinautum og möguleikum þeirra til þess að hafa starfsmenn í vinnu og greiða laun. Verði  þessum áformum hrint í framkvæmd er veruleg hætta á því að þeir fjárfestingarkostir sem erlend fyrirtæki hafa haft til skoðunar hér á landi verði endurmetnir og hugsanlega slegnir af.
Að auki hafa breytingar á fjármagnstekjuskatti verið nefndar sérstaklega til sögunnar. Allar þessar breytingar hafa í för með sér versnandi rekstrar- og fjárfestingarumhverfi á Íslandi. Trúverðugleiki landsins er nú þegar laskaður og fátt sem dregur erlenda fjárfesta hingað til lands. Aðgerðir sem rýra rekstrar- og skattaumhverfi fyrirtækja frekar munu því verða enn eitt skref í átt frá settu marki um efnahagslega endurreisn. Sjaldan hefur þörfin fyrir erlenda fjárfestingu verið ríkari og á sama tíma vinna stjórnvöld markvisst gegn slíkum fjárfestingum. Við þetta verður ekki unað.’

Loks segja samtök atvinnurekenda að það sé verðugt markmið að hagræðing í ríkisrekstri komi sem minnst niður á þeim efnaminni. Sú leið sem stjórnvöld virðist ætla að fara sé hinsvegar afar óheppileg og þjóni ekki endanlegum tilgangi. Með því að reyna að skattleggja sig út úr vandanum vegi stjórnvöld  að undirstöðum velferðarkerfisins, enda sé sterkt atvinnulíf grundvöllur skatttekna. Þannig sé líklegra að lífskjör þeirra lakast settu myndu versna enn frekar vegna minni umsvifa í hagkerfinu. Það sé óhjákvæmilegt að allir beri einhverjar byrðar í því krefjandi verkefni sem framundan sé. Atvinnulífið geri sér vel grein fyrir þessu og víki sér ekki undan ábyrgð. Stjórnvöld verði að mæta áskoruninni í ríkisfjármálunum af fullum krafti með gagngerri heildarendurskoðun á útgjöldum hins opinbera og róa að því öllum árum að langtímasamkeppnishæfni skattkerfisins verði fyrir sem minnstum skaða.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is