Þriðjudagur 29.09.2009 - 07:13 - Ummæli ()

Bankamenn krefjast ofurlauna úr þrotabúum gömlu bankanna

bankar.jpgMargir starfsmenn íslenskra fjármálafyrirtækja, sem fóru á hliðina í íslenska efnahagshruninu, sækja nú launa- og bónuskröfur í þrotabú þeirra. Starfsmennirnir sem gera kröfurnar munu að öllum líkindum skipta hundruðum, en kröfurnar í þrotabú viðskiptabankanna þriggja nema hundruðum milljóna eða milljörðum króna. Frá þessu er sagt í DV í dag.

Blaðið hefur eftir starfsmanni slitastjórnar Kaupþings að þótt launakröfurnar séu kannski ósanngjarnar eigi fyrrverandi starfsmenn gömlu bankanna rétt á að gera þær.

Bankamennirnir gera kröfu um að fá greiddan uppsagnarfrest sinn á þeim launum sem þeir voru á í gömlu bönkunum. En eins og alþjóð veit voru laun starfsmannanna í gömlu bönkunum margfalt hærri en í þeim nýju. Þeir sem færðu sig yfir í nýju bankana og til annarra fyrirtækja gera kröfu um að fá mismuninn á þeim launum sem þeir eru með í dag og þeim launum sem þeir voru með í sínu gamla starfi í þann tíma sem uppsagnarfrestur þeirra varir.

Dæmi er um að starfsmenn í gömlu bönkunum hafi lækkað um 80 prósent eða meira í launum við að fara úr gömlu bönkunum og í þá nýju, til að mynda farið úr 5 milljónum króna á mánuði og niður í 1 milljón. Starfsmaður sem til að mynda var með sex mánaða uppsagnarfrest og var með fimm milljónir í mánaðarlaun vill þannig fá greiddan mismuninn á gömlu laununum sínum og þeim launum sem hann er á í dag í sex mánuði. Í slíku tilfelli þarf þrotabú bankans að greiða honum 24 milljónir króna. Ef starfsmaður með sömu laun hefði verið á eins og hálfs árs uppsagnarfresti hefði fjármálafyrirtækið þurft að greiða honum 64 milljónir króna út af uppsagnarfrestinum.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is