Gróðabrask ástæða skulda í sjávarútvegi: Skuldsetning tilkomin vegna annars en rekstri fyrirtækjanna
Yfirskuldsetningu sjávarútvegsfyrirtækja má að stórum hluta rekja til annars en reksturs fyrirtækjanna. Nálægt helmingur skulda sjávarútvegsins er til kominn vegna hlutabréfakaupa, afleiðusamninga og skuldsettra yfirtöku fyrirtækja.
Þetta kom fram í máli Ásmundar Stefánssonar, bankastjóra Landsbankans, á aðalfundi Samtaka fiskvinnslustöðva, en Fréttablaðið tekur þetta saman í dag. Um helmingur íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja er viðskiptavinir Landsbankans og því eru tölur bankans marktækar fyrir stöðuna í íslenskum sjávarútvegi í heild, að hans mati.
Helmingur skuldsetningar óskyldur sjávarútvegi
Þegar ástæður yfirskuldsetningar fyrirtækjanna eru skoðaðar eru 54 prósent skulda þeirra tilkomin vegna kaupa á skipum og kvóta. 28 prósent eru tilkomin vegna hlutabréfakaupa og fimmtán prósent vegna afleiðusamninga. Skuldsettar yfirtökur skýra þrjú prósent skuldanna. „Það sem er áhugavert er að kaup á skipum og kvóta eru aðeins ástæðan fyrir um helmingi yfirskuldsetningarinnar,“ sagði Ásmundur. Með öðrum orðum eigi um helmingur skuldsetningarinnar rætur að rekja til ákvarðana sem tengist ekki rekstri fyrirtækjanna.
Heildarskuldir sjávarútvegsins voru 550 milljarðar í júlí og er talið að skuldir fyrirtækjanna hafi tvöfaldast vegna veikingar krónunnar á síðustu misserum.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is