Þriðjudagur 29.09.2009 - 09:06 - Ummæli ()

Transparency International: Lítil spilling á Íslandi

mutur.jpgÍsland er í 7. sæti yfir þau ríki heims þar sem minnst spilling er samkvæmt árlegri skýrslu stofnunarinnar Transparency International. Holland deilir sætinu með Íslandi, en í efsta sætinu er Danmörk.

Frá þessu er sagt í Morgunblaðinu í dag. Skýrslu Transparency, sem er tæpar 500 blaðsíður, má finna á vefnum.

Fram kemur að niðurstaðan fyrir Ísland er byggð á fimm könnunum, en til samanburðar gerði stofnunin 9 kannanir í Singapúr þar sem spilling mælist minni en hér á landi.

Árið 2005 lenti Ísland í fyrsta sæti yfir lönd þar sem minnst spilling var. Árin þar á undan hafði Ísland lengi verið í 2. sætinu.

Transparency stofnun hefur verið gagnrýnd fyrir að skilgreina spillingu frekar þröngt sem mútur. Fá mútumál hafa komið til kasta íslenskra dómstóla. Hafa ýmsir íslenskir fræðimenn dregið niðurstöður stofnunarinnar í efa.  Það hefur Robert Wade, prófessor við London School of Economics, einnig gert. Í grein sem hann birti í sumar í Challenge Magazine, bresku tímariti um efnahagsmál, segir hann að meðal verkefna sem íslenskra félagsvísindamanna bíði sé að rannsaka hvernig það gat gerst að land eins og Ísland, sem hann fullyrðir að sé gegnumsýrt af spillingu og landlægum klíkuskap, hafi getað komist efst á blað Transparency International yfir þær þjóðir sem búi við minnsta spillingu í heiminum.  


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is