Jóhanna: Nauðsynlegt að ríkisstjórn og þingflokkar stjórnarflokka séu einhuga um Icesave
„Ég vil geta sagt við Breta og Hollendinga: „Það er meirihluti fyrir þessari sameiginlegu niðurstöðu [í Icesave-málinu] eins og það liggur fyrir þó að það geti breyst á þingi og þið verðið í framhaldinu að losa um það svo við getum farið í að endurskoða áætlun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.“ Þetta get ég ekki sagt nema ég hafi ríkisstjórnina og þingflokkana báða á bak við mig.“
Þetta sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra á fundi Samfylkingarinnar í gærkvöldi, en Morgunblaðið hefur þetta eftir henni í dag.
Að sögn blaðsins sagði hún að Ögmundur Jónasson, sem í gær sagði af sér embætti heilbrigðisráðherra, hefði ekki verið tilbúinn til að fara þessa leið. Hann hefði lagt til að málið yrði lagt að nýju fyrir þingið og reynt að ná um það breiðri pólitískri samstöðu. Jóhanna sagðist ekki treysta sér til að leggja málið „galopið“ fyrir þingið.
Jóhanna sagði að í viðræðum við Hollendinga og Breta hefðu íslensk stjórnvöld lagt til að þau hefðu heimild til að leggja málið fyrir dómstóla og að niðurstaða þeirra hefði síðan áhrif á hversu mikið Íslendingar greiddu af Icesave-skuldbindingunum. Bretar og Hollendingar hefðu sagt að ef þessi leið yrði farin gerðu þeir kröfu um að neyðarlögin yrðu opnuð að nýju þar sem í þeim hefði falist mismunun milli íslenskra og erlendra kröfuhafa.
Bæði Jóhanna og Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra sögðu eftir ríkisstjórnarfund í gær að einhugur ríkti um að halda stjórnarsamstarfinu áfram.
Ósátt við tenginguna við Icesave
Jóhanna sagðist afar ósátt við að Bretar, Hollendingar og Norðurlandaþjóðirnar skyldu tengja Icesave við endurskoðun á efnahagsáætlun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Hún vildi reyna að rjúfa þetta þrátefli. Hún sagðist gera sér vonir um að hún gæti gert þetta ef hún fengi tryggingu fyrir því frá báðum stjórnarflokkunum að hægt yrði að ljúka Icesave-málinu á grundvelli þeirra umræðna sem stæðu yfir.
Það kom jafnframt fram hjá Jóhönnu að Íslendingar væru ekki búnir að ná niðurstöðu í viðræðum við Breta og Hollendinga. Hún sagði að þjóðirnar hefðu fallist á fyrirvarann sem kenndur er við Ragnar Hall, fyllri ákvæði um friðhelgi og að náttúruauðlindirnar yrðu ekki veðsettar vegna Icesave-skuldbindinganna. Jóhanna sagði að íslensk stjórnvöld hefðu lagt áherslu á að ef niðurstaða dómstóla yrði sú að Íslendingum bæri ekki að greiða skuldbindingarnar þá leiddi það til þess að málið yrði tekið upp að nýju þannig að við þyrftum ekki að greiða fyrir Icesave.
Bretar og Hollendingar hefðu hins vegar brugðist við þessari tillögu Íslendinga með því að gera kröfu um að neyðarlögin yrðu opnuð að nýju vegna þess að þau hefðu falið í sér að erlendir kröfuhafar fengju aðeins lágmarkstryggingu en íslenskir kröfuhafar fengju sínar skuldbindingar greiddar að fullu.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is