Fimmtudagur 01.10.2009 - 05:22 - Ummæli ()

Ögmundur enn jafn andsnúinn AGS á Íslandi: „Fari hann því fyrr því betra“

ogmundur-jonasson1.jpgÖgmundur Jónasson, fráfarandi heilbrigðisráðherra, heldur fast í gífurlega andstöðu sína við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og störf hans hér á landi. Eftir að hafa tilkynnt afsögn sína sem heilbrigðisráðherra sagðist Ögmundur ætla að halda áfram að beita sér fyrir því að AGS hverfi af landi brott: „Því fyrr sem hann fer, því betra.“

Þetta kemur fram í DV í dag.

Sem kunnugt er var afstaða Ögmundar í Icesave-málinu ásæða þess að hann baðst lausnar en af ráðherrum ríkisstjórnarinnar var hann harðasti andstæðingur þess að gengið yrði að Icesave-samkomulaginu. Bein tengsl eru á milli Icesave-samkomulagsins og þess hvort og hvenær Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn lánar Íslendingum.

„Ég mun gera það sem ég hef gert allan tímann, innan ríkisstjórnar sem utan, að beita mér fyrir því að hann hafi sig á brott úr landinu hið allra fyrsta,“ sagði Ögmundur þegar hann gekk frá stjórnarráðinu eftir að hafa tilkynnt afsögn sína. Hann ítrekaði þar hversu mjög hann er á móti sjóðnum. „Ég er ekki í aðdáendaklúbbnum.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is