Biðjum og styðjum í kreppunni: Söfnunarátak í kirkjum landsins næstu tvo sunnudaga
Næstu tvo sunnudaga, þann 4. og 11. október, verður þess minnst í kirkjum landsins að ár er liðið frá því að efnahagskreppan hófst. Beðið verður fyrir þeim sem glíma við afleiðingar hennar og þeim sem leggja sitt af mörkum til að aðstoða. Tekin verða samskot í messunum og rennur söfnunarfé til innanlandsaðstoðar Hjálparstarfs kirkjunnar.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Biskupsstofu.
Í tilkynningunni segir að þegar efnahagskreppan skal á þjóðinni fyrir ári síðan hafi söfnuðir um allt land brugðist við og sinnt þeirri skyldu sinni að aðstoða fólk, bæði með sérstökum verkefnum og í samvinnu við sveitarfélög, stofnanir og félagasamtök. Mikið hafi mætt á Hjálparstarfi kirkjunnar. Umsóknum um aðstoð hafi fjölgað gríðarlega og nýir hópar sótt um aðstoð. Sem dæmi megi nefna að í september 2008 varði Hjálparstarfið 900.000 krónum í aðstoð, mat, lyf, skólagjöld, skólavörur, tómstundagjöld og fleira. Í september 2009 var þessi upphæð um 8 milljónir króna.
Fram kemur að við guðsþjónustur í kirkjum landsins sunnudagana 4. og 11. október verði sérstaklega minnst þessara aðstæðna. Þar verður beðið fyrir þeim sem gíma við margvíslegar afleiðingar hrunsins, og þeim sem leggja sig fram um að hjálpa og liðsinna öðrum. Fólki verður og gefinn kostur á að leggja fram fjármuni til styrktar innanlandsaðstoðinni.
Í tilkynningunni segir að ekki sé víst að allir séu undirbúnir til að gefa í messunni. Einnig sé hægt að styrkja söfnunina gegnum styrktarsíðuna www.framlag.is eða í gegnum heimasíðu starfsins www.help.is . Þá megi leggja inn á reikning Hjálparstarfs kirkjunnar, kt. 450670-0499, reikningsnúmer 334 26 27.
Öllu söfnunarfé verður varið í innanlandsaðstoð Hjálparstarfs kirkjunnar.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is