RÚV: Meirihluti alþingismanna vill endurskoða samstarfið við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn
Meirihluti alþingismanna vill endurskoða samstarfið við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn.
Þetta kom fram í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins.
Fram kom að þingmeirihluti væri fyrir því að endurskoða bæri ósk um aðstoð frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Haft var eftir þingmanni Vinstri grænna að flokkurinn vildi sjóðinn burt við fyrsta tækifæri. Þá sagði RÚV að sjálfstæðismenn vilji afþakka lánin og framsóknarmenn vilji að unnið verði að endurreisnaráætlun sem ekki geri ráð fyrir aðstoð sjóðsins.
RÚV vitnaði í ræðu Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, á Alþingi í gær, en þar sagði hann að þar sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefði hafnað tillögum til lausnar á jöklabréfavandanum væri tímabært að endurskoða það að þiggja aðstoð frá sjóðnum.
„Þess vegna vill Sjálfstæðisflokkurinn endurskoða þá áætlun sem stjórnvöld gerðu með Alþjóðagjaldeyrissjóðnum,“ var orðrétt haft eftir Bjarna.
Samkvæmt heimildum fréttastofu RÚV eru nokkrir þingmenn Sjálfstæðisflokksins sem vilja að aðstoð sjóðsins verði hafnað. En fleiri eru á því að endurskoða beri sambandið við sjóðinn. Sagt var að flokkurinn undirbyggi nú tillögu um að ekki verði lengur óskað eftir láni frá sjóðnum, lítil þörf sé á því. Frekar eigi að óska eftir því að lánalínur standi opnar.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is