Grunaður maður fer með yfirumsjón norrænna eigna fyrir skilanefnd Kaupþings
Halldór Bjarkar Lúðvígsson, sem sagður er í frétt Oberver í dag hafa fengið stöðu grunaðs manns í Kaupþingsrannsókn serstaks saksóknara, starfar enn fyrir skilanefnd Kaupþings.
Halldór Bjarkar, sem er fyrrverandi yfirmaður lánasviðs Kaupþings, hefur haft umsjón með norrænum eignum bankans fyrir skilanefndina.
Hann á sæti í eignaumsýslunefnd, Asset Committee, sem er ein af undirnefndum skilanefndarinnar. Eignaumsýslunefndin gegnir sama hlutverki og lána- og fjárfestinganefndir hjá venjulegu fjármálafyrirtæki, að því er kom fram á kynningarfundi með kröfuhöfum í júní sl. Þar segir einnig að 11 starfsmenn vinni í norrænu lánadeildinni undir Halldóri.
Í frétt Observer kemur fram að hugsanlega verði staða Halldórs endurskoðuð og hann fái stöðu vitnis í málinu.
Andri Geir Arinbjarnarson, ráðgjafi, gagnrýnir þetta á bloggsíðu sinni í dag. Hann segir að sé það rétt að Halldór Bjarkar hafi stöðu grunaðs manns í rannsókninni bendi það til að skilanefndin sé vanhæf:
Að Halldór skuli ekki víkja frá sínu starfi á meðan hann er með stöðu grunaðs aðila að eigin frumkvæði vekur upp spurningar um siðferðisþrek og hæfni hans. Það sama á við þá einstaklinga sem sitja í skilanefnd og sérstakleg formann hennar. Þá má spyrja um hvers vegna ráðherrar virðast leggja blessun sína yfir þetta með þögn og afskiptaleysi?
Andri Geir segir að réttast væri að öll skilanefndin segði af sér ásamt Halldóri.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is