Sunnudagur 11.10.2009 - 12:57 - Ummæli ()

Jóhanna segir óásættanlegt að falla frá dómstólaleið í Icesave

johanna-steingrimur-5.jpgJóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra staðfesti í viðtali við RÚV í hádeginu að Bretar og Hollendingar hafi ekki viljað samþykkja þann fyrirvara við Icesave samningana að Íslendingar hefðu rétt á að fá úr því skorið fyrir dómstólum hvort þeir séu skyldugir að greiða Icesave reikningana.

Jóhanna segir að nú sé verið að reyna að fá ásættanlega niðurstöðu í það mál. „Öðruvísi förum við ekki með það fyrir þingið.“

Jóhanna sagði að það væri „auðvitað ekki ásættanlegt ef okkur væri bannað að leita réttar okkar síðar meir, ef í ljós kemur að okkur hafi ekki borið þessi greiðsluskylda á Icesave láninu.

Ögmundur Jónasson sagði í fréttum RÚV í gær að meginástæðan fyrir því að hann hvarf úr ríkisstjórn hafi verið sú að hann hafi ekki viljað samþykkja að fallið yrði frá þessum fyrirvara.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is