Morgunblaðið í leiðara: Norska fjármálaráðuneytið sagði í leyniskjali í sumar að Icesave þyrfti að klárast
Morgunblaðið upplýsir í leiðara í dag að Svein Harald Øygard þáverandi Seðlabankastjóri hafi í sumar tekið saman samskonar greinargerð fyrir ríkisstjórnina og Seðlabankinn hefur gert nú um alvarlegar afleiðingar þess að Alþingi samþykkti ekki ríkisábyrgð á Icesave samninginn.
Blaðið segir að í greinargerð Øygards hafi jafnframt verið sérstök yfirlýsing frá ráðuneytisstjóra norska fjármálaráðuneytisins, um að Norðmenn myndu ekki hjálpa Íslendingum nema Icesavemálið yrði klárað. Kristin Halvorsen, formaður SV, systurflokks VG í Noregi, er fjármálaráðherra og blaðið segir að þessa yfirlýsingu fra í sumar gera Norðmönnum erfitt fyrir núna í tengslum við „virðingarverða“ lánaumleitan formanns Framsóknarflokksins í Noregi. Jafnframt furðar leiðarahöfundur sig á að stjórnarandstaðan, sem sá skjalið í sumar, skuli enn halda trúnað um efni þess.
Í leiðaranum segir m.a. um yfirlýsingu Øygards í sumar.
Og plaggið var vont. Sem bíómynd hefði það verið bannað fyrir börn og viðkvæma. Þar var allt tínt til. Og til þess að plaggið yrði nægjanlega ógnvænlegt var fengin yfirlýsing í plaggið frá ráðuneyti sérstakrar vinkonu íslenska fjármálaráðherrans, þar sem því var efnislega lýst yfir að Norðmenn myndu alls ekki hjálpa Íslendingum nema Icesavemálið yrði klárað. Engin slík yfirlýsing lá áður fyrir frá Norðmönnum. Þessi yfirlýsing, sem ráðuneytisstjórinn í norska fjármálaráðuneytinu var látinn gefa gerir Norðmönnum nú erfitt fyrir. Þetta plagg var afhent leiðtogum stjórnarandstöðunnar sem mikið trúnaðarskjal. Af hverju? Og af hverju í ósköpunum virða þeir þann trúnað? Það er sjálfsagt að virða trúnað, ef eitthvert vit er í því. En hver má ekki fá að vita um allar þær skelfingar sem áttu að dynja á þjóðinni ef hún samþykkti ekki Icesavesamninginn óbreyttan og möglunarlaust. Er það þjóðin, sem mátti ekki vita það? Getur það verið? Varla. Og örugglega ekki lengur. Samningurinn var ekki samþykktur óbreyttur og ekkert af því sem spáð var hefur gerst. Hins vegar er pöntunin á yfirlýsingunni frá Noregi að verða okkur dýr. Er það ástæðan fyrir því að þetta ólánsskjal er enn þá leyniplagg?
Fram hefur komið í fréttum að Jens Stoltenberg forsætisráðherra Noregs hafi svarað fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra um lánafyrirgreiðslur í vikunni og sagt ekki koma til greina að lána Íslendingum óháð Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Jóhanna sagðist í gær hafa látið kanna möguleika á láni frá Norðmönnum víðar en hjá forsætisráðherranum, meðal annars í norska Fjármálaráðuneytinu. Hún kallar málatilbúnað Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar og Höskuldar Þórhallssonar, formanns og þingmanns Framsóknarflokksins „ómerkilegan blekkingarleik“ og málflutning þeirra „þvætting og dónaskap.“
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is