Söngvari úr Boyzone látinn aðeins 33 ára: Kafnaði í ælu
Söngvarinn Stephen Gately, sem er þekktur fyrir frammistöðu sína með strákasveitinni Boyzone, lést á föstudaginn eftir átta klukkustunda drykkjutúr.

Fyrr um kvöldið hafði hann verið að skemmta sér á hommabarnum Black Cat á Mallorca ásamt eiginmanni sínum Andy Cowles. Þeir áttu sumarhús á Mallorca og voru að fagna endurbótum sem þeir höfðu nýverið gert á húsinu. Sjónarvottar segja að parið hafi drukkið stíft.
Klukkan hálf fimm um morgunin fóru hjónin heim með sér félaga af barnum, Giorgi Duchev, 25 ára gamlann mann frá Búlgaríu. Þeir héldu áfram að drekka fram á morgun. Andy fór í rúmið um hálf sex um morguninn en kom að Stephen látnum þegar hann fór á fætur.

Andy kom að Stephen látnum upp úr hádegi og fylltist mikilli skelfingu. Hann reyndi að blása lífi í Stephen en það var of seint.
Andy segir að Stephen hafi verið í bænastellingu þegar hann kom að honum. Kraup á hné á gólfinu með höfuðið á púða á sófanum.
Lögreglan leitar nú að manninum sem fór heim með þeim félögum. Hann er ekki grunaður um morð en vitnisburður hans mun vera mikils virði.
Félagar Stephens úr Boyzone mættu allir með einkaþotu til Mallorca í gær til að sýna Andy stuðning. Ronan Keating ku vera niðurbrotinn.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is