Miðvikudagur 14.10.2009 - 12:03 - Ummæli ()

Kynþokkinn í kreppunni: Konur eru sjúkar í sexý sokkabelti

Sala á sokkabeltum og háum sokkum í Bretlandi hefur aukist um 35-40% á síðustu vikum, þökk sé stjörnum á borð við Lily Allen, Kate Perry og Rihönnu. 

article-1220073-06c1eade000005dc-349_196×544.jpgarticle-1220073-06cdc5cb000005dc-639_196×544.jpg

article-1220073-06b4ea3d000005dc-305_196×544.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Undanfarið hafa margar frægar skvísur sést á vappinu í þessum ögrandi og kynþokkafulla klæðnaði.

Dita Von Teese hefur setið fyrir á blúndubrjóstahaldara og sokkabelti í kynningarherferð sinni fyrir nýja undrahaldarann (wonderbra). Hún er sannarlega glæsileg og þokkafull í þessum gamaldags stíl, svo glæsileg að áhrif hennar  farið sem eldur um undirfatasinu Breta.

Rihanna vílaði heldur ekki fyrir sér að mæta á einskonar S&M gúmmívöðlum með tilheyrandi sokkaböndum í partý hjá Chanel, Lily Allen trítlaði um á sexý sokkabuxum sem minna á sokkabelti og Kate Perry var elegant þar sem hún pósaði fyrir Esquire fyrr á þessu ári. Svo gerði hún gott betur þegar hún kom til veislu með nýja kærastanum, Russel Brand, klædd hvítum sokkaböndum og örstuttum bláum kjól.

Verslunin Figleaves sem starfar einungis á netinu hefur greint frá því að 35% söluaukning hafi orðið á háum sokkum á síðustu sex vikum, eða frá því að stjörnurnar urðu meira áberandi í þessum klæðnaði. Sala á sokkabeltum hefur hinsvegar aukist um 40%.

katy-perry-naked-0409-lg.jpg

Sokkabelti og sokkabönd voru hluti af glamúr eftirstríðsáranna í Hollywood og sjaldan hefur þessi klæðnaður verið vinsælli en þá. Í sjálfum tískuheiminum hafa árhrif frá þessum tíma verið talsvert áberandi að undanförnu. Konur þannig virðast hafa tilhneigingu til að vilja auka á kvenleika og kynþokka í kreppum og kaupa sér þannig kynæsandi fatnað til að bæta geðið og kæta.

picture-3.png

[youtube=www.youtube.com/watch?v=hmObwbMu2ns]


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is