Fimmtudagur 15.10.2009 - 21:00 - Ummæli ()

Vandræði í Ölpunum: Stormur í D-skálum

Mikið uppnám átti sér stað þegar kom í ljós að fyrirsæta á Svissnesku bændadagatali var ekki ættuð frá Sviss heldur Þýskalandi.

ungfruapril.jpg

Allt var klappað og klárt. Búið að mynda 12 upprunalegar bændastúlkur þegar á daginn kom að ungfrú Apríl, sem stillti sér svo glaðlega upp með tveimur geitum, var ekki frá Sviss heldur Þýskalandi!

Heimamenn (konur) urðu allsendis ekki hressar með þetta. Héldu því fram að nægilegt framboð af föngulegum kvenmönnum væri að finna í Sviss og því væri þetta heljar skandall.

En Johanna, sem er búfræðinemi (eða skiptinemi) í Sviss, segir þetta storm í D-skálum.

 “Ég elska dýr. Þessvegna var ég til í að taka þátt í þessu dagatali. Svo ég stolt af líkama mínum og langaði að leyfa honum að sjást.“

sviss.jpg


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is