Ný könnun: Sjálfstæðisflokkur gleypir (Borgara)hreyfingu – Ríkisstjórnin heldur meirihluta
Borgarahreyfingin og klofningsflokkur hennar, Hreyfingin, eiga ekki upp á pallborðið hjá kjósendum samkvæmt nýrri könnun Fréttablaðsins. Flokkarnir eru báðir langt undir því lágmarksfylgi sem þarf til að fá frambjóðendur kjörna á þing samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins, sem gerð var í gærkvöldi.
Í könnuninni mælist Borgarahreyfingin með stuðning 0,8 prósenta kjósenda, og Hreyfingin með 0,4 prósent. Sameiginlega eru þessi framboð langt frá því að koma manni á þing, því til þess þarf að komast yfir 5 prósenta lágmark. Borgarahreyfingin fékk 7,2 prósenta fylgi í kosningum í vor og fjóra menn kjörna á þing.
Allt fylgi Borgarahreyfingar yfir á Sjálfstæðisflokkinn
Svo virðist sem fylgistap Borgarahreyfingarinnar fari rakleiðis yfir til Sjálfstæðisflokksins, því hann bætir verulega við sig á meðan aðrir flokkar standa nánast í stað.
Sjálfstæðisflokkurinn mælist nú með 34,8 prósenta fylgi, samanborið við 23,7 prósenta kjörfylgi. Flokkurinn myndi bæta við sig sex þingmönnum yrði þetta niðurstaða kosninga, færi úr 16 í 22 þingmenn.
Samfylking hækkar lítillega og ríkisstjórn heldur meirihluta
Þrátt fyrir aukið fylgi Sjálfstæðisflokksins heldur ríkisstjórnin meirihluta sínum samkvæmt könnuninni, fengi 32 þingmenn kjörna og slétt 50 prósent atkvæða.
Samfylkingin mælist með 30,8 prósenta fylgi, einu prósentustigi yfir kjörfylgi. Það myndi skila flokknum sama þingmannafjölda.
Vinstri græn tapa hins vegar örlitlu fylgi frá kosningunum, mælast með 19,2 prósent nú, en fengu 21,7 prósent í kosningunum. Við það myndu tveir þingmenn tapast, úr 14 í 12.
Framsóknarflokkurinn mælist örlítið undir kjörfylgi, fengi 14,1 prósent samkvæmt könnun Fréttablaðsins en fékk 14,8 prósent í kosningunum, en hélti þó sínum níu þingmönnum.
Fréttablaðið hringdi í 800 manns fimmtudaginn 15. október. Svarendur skiptust jafnt eftir kyni, og hlutfallslega eftir búsetu. Spurt var; Hvaða lista myndir þú kjósa ef gengið yrði til kosninga nú? Alls tóku 64,4 prósent afstöðu til spurningarinnar. Samkvæmt því eru aðeins 515 manns á bakvið þessar niðurstöður.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is