Össur við Reuters: Nýtt Icesave-frumvarp fyrir þingið og rætt aftur við Breta og Hollendinga
Ríkisstjórnin mun leggja fram nýtt frumvarp á Alþingi um Icesave-samninga við Breta og Hollendinga á allra næstu dögum. Þetta segir Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, í samtali við Reuters fréttastofuna.
Össur segist vongóður um að nýja frumvarpið verði þess eðlis að það njóti stuðnings á Alþingi og að hægt verði að leysa deilu þjóðanna.
Nauðsynlegt að leggja fyrir Alþingi
„Í mínum huga er nauðsynlegt að leggja málið að nýju fyrir Alþingi,“ segir Össur. „Mér sýnist sem við séum á síðustu metrunum og ættum að leggja fram nýtt frumvarp fram á allra næstu dögum. Ég held að það ætti ekki að taka of langan tíma til að fá niðurstöðu til að kynna fyrir þinginu. Þá er ég vongóður um að málið muni, einsog við leggjum það nú fram, hljóta stuðning á Alþingi.“
Þá segir Össur að stefnt sé að því að hefja viðræður við Breta og Hollendinga að nýju á grundvelli hins nýja lagafrumvarps. „Við leggjum mjög hart að okkur til þess að ná niðurstöðu í málinu,“ segir Össur við Reuters.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is