Meirihluti landsmanna vill að samningi Íslands við AGS verði sagt upp
Meirihluti svarenda í nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins vill að ríkisstjórnin segi upp samningnum við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Af þeim sem taka afstöðu vilja 58 prósent uppsögn samningsins, en 42 prósent eru andvíg uppsögn hans.
Samkvæmt könnuninni vill meirihluti stuðningsmanna allra flokka utan Samfylkingarinnar segja upp samningnum. Rúmlega 65 prósent sjálfstæðismanna vilja uppsögn, tæp 69 prósent framsóknarmanna og 59 prósent stuðningsmanna Vinstri grænna. Á meðal Samfylkingarfólks vilja 35 prósent segja samningnum upp en 65 prósent vilja það ekki.
Steingrímur: Tafir hafa neikvæð áhrif
Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, segir við blaðið að niðurstaðan komi sér ekki á óvart. „Maður hefur skynjað það að þessar endalausu tafir á endurskoðuninni hafa grafið undan trú fólks á þessu samstarfi. Þetta undirstrikar að málið þarf að komast á hreyfingu eða við verðum að fara að grípa til annarra ráða.“
„Ég les það út úr þessu að það sé mikil óánægja með að áætlun okkar með AGS sé ekki að ganga eftir. Ég er þeirrar skoðunar að það þurfi að endurskoða áætlunina, en á sama tíma sé skynsamlegt að byggja áfram á samstarfi við sjóðinn,“ segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins.
„Mér finnst þetta mjög gleðileg tíðindi, þau bera vott um að þjóðin sé að öðlast sjálfsvirðingu á ný,“ segir Ögmundur Jónasson, þingmaður VG. „Því fyrr sem þjóðurinn fer því betra.“
Fréttablaðið hringdi í 800 manns fimmtudaginn 15. október. Svarendur skiptust jafnt eftir kyni og hlutfallslega eftir búsetu. Spurt var: Á ríkisstjórnin að segja upp samningnum við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn? Alls tóku 78 prósent afstöðu til spurningarinnar, eða 624.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is