Fimmtudagur 22.10.2009 - 16:57 - Ummæli ()

Íslensk stjórnvöld búin að senda svörin til ESB

esb-brussel.jpgÍslensk stjórnvöld skiluðu í dag inn svörum við spurningalista framkvæmdastjórnar ESB.

Öll ráðuneyti stjórnarráðsins og fjöldi undirstofnana vann að svörunum sem telja rúmlega 2600 blaðsíður, auk fylgiskjala, samtals 8870 síður. Á grundvelli svara íslenskra stjórnvalda mun framkvæmdastjórnin gefa leiðtogaráði ESB álit sitt á hvort Ísland uppfylli viðmið til að verða formlegt umsóknarríki að Evrópusambandinu.

Þetta kom fram í tilkynningu utanríkisráðuneytisins síðdegis.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is