Mánudagur 26.10.2009 - 17:20 - Ummæli ()

„Ísland er í svo mikilli klessu að McDonalds gefst upp og fer heim“

mcdonalds.jpgFréttin um að loka hafi þurft MacDonalds Íslandi vegna efnahagsástandsins vekur athygli erlendis í dag.

„Ísland er í svo mikilli klessu að McDonalds gefst upp og fer heim,“ hljóðar fyrirsögnin á neytendasíðunni The Consumerist, sem er haldið úti af útgefanda hinu þekkta neytendariti Consumer Reports.

Í frétt frá Ómari Valdimarssyni á Bloomberg fréttaveitunni er m.a. haft eftir Magnússi Ögmundssyni framkvæmdastjóra hjá Lyst, sem rekur McDonalds á Íslandi, að fall krónunnar hafi grafið undan rekstrargrundvellinum. Kostnaður innfluttra hráefna hafi tvöfaldast og að Lyst hefði þurft að hækka verðið á Big Mac hamborgaranum úr 650 í 780 krónur.

Á meðan bjóði samkeppnisaðilar hamborgara úr innlendu hráefni.

Í frétt AFP er jákvæður snúningur settur á málið með fyrirsögn um Ísland sé að losna við McDonalds.

Í fréttatilkynningu Lystar fyrr í dag kom fram að Metro-staðirnir sem taka við af McDonalds ætli að bjóða svipaðar vörur og áþekkan matseðil á sambærilegu verði.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is