Seðlabankastjóri segir bankahrunsrannsókn leiða fleiri brotalamir banka í ljós
„Ekki er ólíklegt að yfirstandandi rannsókn á falli bankanna muni leiða í ljós að fleiru hafi verið ábótavant en viðskiptalíkani þeirra og áhættustýringu, svo sem gæðum eigna og stjórnháttum. Þá hafa áætlanir um endurheimtur úr þrotabúum bankanna vakið spurningar um gæði reikningsskila og upplýsinga kennitalna um fjárhagslegan styrk þeirra.“
Þetta segir Már Guðmundsson, seðlabankastjóri m.a. í formála að skýrslu um fjármálastöðugleika sem bankinn birtir í dag.
Már segir að það hafi hins vegar verið erfiðleikar við endurfjármögnun erlendra eigna bankanna sem hafi hleypt hruninu af stað. „Sökum stærðar bankanna var það síðan íslenskum stjórnvöldum ofviða að koma þeim til aðstoðar á úrslitastundu,“ segir hann.
Már segir að stjórnvöld um allan heim hafi gripið til björgunaraðgerða sem eigi sér ekki fordæmi en bendir um leið á það, að björgunarstarfið hér á landi hafi verið nokkuð annnars eðlis:
Íslensk stjórnvöld höfðu ekki ein og sér burði til að verja bankana falli og ekki náðist alþjóðlegt samstarf um það verkefni, þrátt fyrir að færa megi fyrir því rök að bankarnir þrír hafi verið kerfislega mikilvægir í þei skilningi að fall þeirra gat haft keðjuverkandi áhrif í ýmsum löndum Norður-Evrópu. Þvert á móti einkenndust viðbrögðin í tilfelli íslensku bankanna af átökum á milli landa og tilraunum til að slá skjaldborg um eignir í hverju landi fyrir sig. Alkunna er að slík nálgun leiðir af sér meira tjón en ella.
Má segir líka í formálunum að tímabært sé að byrja að losa um gjaldeyrishöftin nú þegar endurskoðun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á efnahagsáætlun fyrir Ísland virðist í höfn.
Sjá nánar um útgáfu ritsins um fjármálastöðugleika á vef Seðlabanka Íslands.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is