Fimmtudagur 29.10.2009 - 16:14 - Ummæli ()

Formaður LÍÚ gagnrýnir stjórnvöld: Óútfærðar hugmyndir um innköllun kvóta þegar valdið tjóni

adolfliu.jpgAdolf Guðmundsson, formaður LÍÚ, gagnrýndi stjórnvöld harðlega í ræðu sinni á aðalfundi útvegsmanna í dag.  Taldi hann hugmyndir um að innkalla veiðiheimildir illa ígrundaðar og að þær hefðu þegar valdið tjóni. Þá sagðist hann fullviss um að íslenska þjóðin myndi hafna aðildarsamningi að Evrópusambandinu.

„Eftir að kvótakerfinu var komið á og sérstaklega með tilkomu frjálsa framsalsins 1991 tók við mikið umbyltingarskeið í íslenskum sjávarútvegi. Viðvarandi taprekstur vék fyrir hagræðingu og arðsemi. Það er á grundvelli þessarar umbyltingar að stærstur hluti íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja mun standa af sér þær hamfarir sem á þeim hafa dunið á undanförnu,“ sagði Adolf í ræðu sinni.

Adolf gagnrýndi harðlega hugmyndir um upptöku aflaheimilda og sakaði stjórnvöld um að skapa óróra innan sjávarútvegsins með því að kasta fram svo óútfærðum hugmyndum. Hann sagði óvissuna samfara þeim þegar hafa valdið tjóni. „Það er nauðsynlegt að hverfa án tafar frá upptökuleiðinni. Raunsæi og heilbrigð skynsemi verður að ráða för, sagði hann.“

Þá ítrekaði Adolf andstöðu útvegsmanna við aðild Íslands að Evrópusambandinu. „Afstaða okkar byggir á þeim grundvallarsjónarmiðum að Íslendingar fari einir með forræði yfir fiskimiðunum, hafi samningsforræði við skiptingu veiðiréttar úr deilistofnum og tali eigin máli á vettvangi alþjóðastofnana. Mikilvægt er að tryggja að arður af nýtingu auðlinda skili sér til íslensks samfélags.“ Hann lauk umfjöllun um ESB með þessum orðum: „Ég er þess fullviss að þjóðin mun aldrei samþykkja aðildarsamning sem felur í sér afsal á yfirráðum yfir fiskveiðiauðlindinni.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is