Fimmtudagur 29.10.2009 - 17:17 - Ummæli ()

Svínaflensan: Landspítalinn í fyrsta skipti settur á næsthæsta mögulega viðbúnaðarstig

lsh-landspitali.jpgLandspítali var færður á virkjunarstig viðbragðsáætlunar spítalans í dag samkvæmt  ákvörðun forstjóra LSH.  Þetta er í fyrsta skipti sem slíkt gerist en virkjunarstig er næstefst af fjórum viðbragðsstigum viðbragðsáætlunarinnar.   Gripið var til þessara aðgerða sökum álags tengdu A(H1N1) inflúensufaraldrinum á gjörgæsludeildir LSH, en gjörgæslan er yfirfull og gífurlegt álag á alla starfsemi spítalans.

Á hádegi í dag voru 35 inniliggjandi á Landspítala vegna inflúensu A(H1N1), þar af 8 á gjörgæslu.  Auk þess hefur verið mikið um önnur alvarleg veikindi og slys sem hafa krafist innlagnar á gjörgæsludeild síðustu daga.

Stjórnun aðgerða viðbragðsáætlunar er í höndum viðbragðsstjórnar sem skipuð er forstjóra, framkvæmdastjórum lækninga og hjúkrunar, framkvæmdastjóra eignasviðs, framkvæmdastjóra bráðasviðs og farsóttarnefnd. Formaður farsóttarnefndar er Már Kristjánsson, yfirlæknir smitsjúkdómadeildar, að því er segir í tilkynningu frá LSH.

Á meðal þess sem viðbragðsstjórnin hefur ákveðið er að færa starfsmenn á milli deilda til að mæta álagi á gjörgæsludeild. Af þessum sökum hefur ýmsum aðgerðum á öðrum deildum verið frestað. Fram kom í viðtali við forstjóra LSH á Rás 2 nú síðdegis að á meðal aðgerða sem hefur verið frestað eru hjartaaðgerðir barna. Þó sagði hann að engum bráðaaðgerðum hefði verið frestað.

Bætt hefur verið við tækjabúnað spítalans á undanförnum dögum til að mæta álaginu.

Bráðamóttökur eru þó enn með óbreyttum hætti. Heimsóknir til sjúklinga eru áfram takmarkaðar. Farsóttarnefnd Landspítala ítrekar tilmæli sín til almennings að takmarka heimsóknir sínar til sjúklinga á sjúkrahúsinu meðan á inflúensufaraldrinum stendur. Einungis þeir sem eiga brýnt erindi mega koma inn á spítalann, aðrir eru hvattir til að nota símann og tala við sjúklingana sjálfa eða starfsfólk viðkomandi deildar.

 

 


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is