Sómalía: 17 ára stúlka gekk að eiga 112 ára gamlan mann
Gestirnir skiptu hundruðum í hjónabandsvígslu þeirra Ahmed Muhamed Dore og Safiu Abdulleh, í Galguduud héraði Sómalíu.

Við þetta tilefni sagði herra Dore „Í dag hefur drottinn látið drauma mína rætast.“
Dore og barnung brúður hans eru úr sama þorpinu en hann kveðst hafa beðið eftir því að hún yxi úr grasi þar til hann bað hennar.
Hann segist ekki hafa þvingað hana til að giftast sér heldur notað reynsluna til að sannfæra þessa ungu stúlku um einlæga ást sína og í kjölfarið ákváðu þau að giftast.“
Fjölskylda stelpunnar segja hana ánægða með ráðahaginn.
Dore er 95 árum eldri en Safiu og ef aldur hans er réttur þá er hann nógu gamall til að vera langa-langa-langafi hennar.
Sagnfræðingar í Sómalíu segja þetta fyrstu hjónavísluna af þessu tagi í heila öld.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is